Vísir Fréttir

Syndicate content Vísir.is
Fréttir: Forsíða á Vísir.is. Endurbirting óheimil, nema til einkanota
Updated: 6 min 25 sec ago

Davids sagður hafa slegið konu í bíó

2 hours 6 min ago
Hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids, sem leikur með Crystal Palace þessa dagana, hefur verið kærður til lögreglunnar fyrir að slá konu utan undir í bíóhúsi.

Þingið ræðir söluna á Vestia

2 hours 14 min ago
Utandagskrárumræða um þátttöku lífeyrissjóðanna í endurreisn atvinnulífsins fer fram á Alþingi á morgun. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er málshefjandi en til andsvara er fjármálaráðherra.

Rannsókn lokið á árásinni i Reykjanesbæ

3 hours 31 min ago
Lögregla hefur lokið rannsókn á máli tveggja manna sem grunaðir eru um að hafa ráðist á karlmann á sjötugsaldri, eiginkonu hans og dóttur þeirra við heimili fjölskyldunnar í Reykjanesbæ í byrjun maí.

Ancelotti vill fylgja í fótspor Ferguson

3 hours 36 min ago
Einhverra hluta vegna hafa fjölmiðlar gaman af því þessa dagana að orða Carlo Ancelotti, stjóra Chelsea, við landslið. Hann þurfti að sverja af sér áhuga á ítalska landsliðinu um daginn og nú er verið að spyrja hann út í enska landsliðið.

Eyðileggingin á Nýja-Sjálandi meiri en áður var talið

4 hours 3 min ago
Eyðileggingin eftir jarðskjálftann á Nýja-Sjálandi á laugardaginn er meiri en áður var talið. Um 100 þúsund af 160 þúsund íbúðum í bænum Christchurch og nágrenni, sem varð verst úti í skjálftanum, eru ónýtar og verða líklegast ekki lagaðar.

Aðeins 37 stuðningsmenn lýsa yfir stuðningi við Gunnlaug

4 hours 21 min ago
Það gustaði rækilega um knattspyrnulið Vals á dögunum þegar Rúv birti frétt þess efnis að stjórn knattspyrnudeildar ætlaði sér að reka Gunnlaug Jónsson þjálfara og ráða Guðjón Þórðarson í daginn.

Skiptar skoðanir um framtíð biskups

4 hours 46 min ago
Skiptar skoðanir eru um það á meðal presta Þjóðkirkjunnar hvort Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands eigi að segja af sér embætti, víkja tímabundið á meðan að sannleiksnefnd um mál ÓIafs Skúlasonar fyrrverandi biskups er að störfum, eða sitja sem fastast.

Ólafur reiknar með Eiði Smára í næsta leik

5 hours 6 min ago
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari á von á því að Eiður Smári Guðjohnsen komi aftur í íslenska landsliðshópinn fyrir næsta leik liðsins, gegn Portúgal í næsta mánuði.

Gáttuð á ummælum um Jóhönnu Sigurðardóttur

5 hours 18 min ago
Formaður Samtakanna 78 á ekki til orð til að lýsa undrun sinni á afstöðu Jenis av Rana, formanns Miðjuflokksins í Færeyjum og þingmanns á færeyska Lögþinginu.

Ólafur: Danir eru frábærir í fótbolta

5 hours 52 min ago
Íslenska landsliðið í knattspyrnu æfði á Parken, þjóðarleikvangi Dana, nú í kvöld. Allir í leikmannahópnum eru heilir, nema Árni Gautur Arason markvörður.

Heittrúaður færeyskur þingmaður neitar að snæða með Jóhönnu

5 hours 58 min ago
Jenis av Rana, formaður Miðjuflokksins í Færeyjum og þingmaður á færeyska Lögþinginu, neitar að mæta til kvöldverðarboðs með Jóhönnu Sigurðardóttur og Jónínú Leósdóttur sem að Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyja hefur boðað til.

Carragher er ánægður með Hodgson

6 hours 36 min ago
Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, er afar ánægður með frammistöðu nýja stjórans, Roy Hodgson, á leikmannamarkaðnum. Hodgson hefur nælt í nokkra þekkta leikmenn þó svo hann hafi ekki úr miklu fjármagni að spila.

Deutsche Bank tilkynnti ESB um yfirtökuna á Actavis

6 hours 51 min ago
Actavis samheitalyfjafyrirtækið lýtur fullkomnum yfirráðum Deutsche Bank, ef eitthvað er að marka tilkynningu Deutsche Bank til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Herjólfur siglir á morgun

6 hours 51 min ago
Gert er ráð fyrir að Herjólfur sigli frá Vestmannaeyjum til Landeyjarhafnar klukkan sex í fyrramálið og aftur til baka um einni og hálfri klukkustund seinna.

Starfsmönnum fækkað um 400

7 hours 6 min ago
Stöðugildum starfsmanna á Landspítala fækkaði um 300 á fyrstu átta mánuðum ársins, segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í samtali við Vísi.

Shawcross er ósáttur með eineltið hjá Arsene Wenger

7 hours 21 min ago
Ryan Shawcross, varnarmaður Stoke og nýr liðsfélagi Eiðs Smára Guðjohnsen, er mjög ósáttur við einelti Arsene Wenger, stjóra Arsenal, sem heldur því fram að hann og Robert Huth stundi það að meiða mótherja sína viljandi.

John Arne Riise fluttur á sjúkrahús með heilahristing

8 hours 6 min ago
John Arne Riise spilar væntanlega ekki með Norðmönnum á móti Portúgal í undankeppni EM á morgun þar sem hann var fluttur af æfingu á sjúkrahús í dag eftir að hafa fengið slæmt höfuðhögg.

Sonur Zidane getur valið á milli franska og spænska landsliðsins

8 hours 6 min ago
Fimmtán ára sonur Zinedine Zidane, Enzo, stendur frammi fyrir stórri ákvörðun á næstunni því hann getur valið á milli þess að spila fyrir franska eða spænska landsliðið.

Forsætisráðherra á leið til Færeyja

8 hours 40 min ago
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fer í dag í opinbera heimsókn til Færeyja.

Danir hafa ekki tapað fyrsta leik í undankeppni í 30 ár

8 hours 51 min ago
Danska landsliðið í knattspyrnu hefur náð stigi út úr fyrsta leik sínum í undankeppni stórmóts allar götur síðan Danir töpuðu á móti Júgóslövum í undankeppni HM 27. september 1980.