Málstofa með Mark Measures

27 Júl 2010 21:03

Áformað er að halda málstofu með Mark Measures, margreyndum breskum ráðunaut í lífrænni ræktun, föstudaginn 6. ágúst n.k. kl. 10/10.30 til 13.30/14.00. Málstofan verður líkast til haldin í Hveragerði. Mark kom til Íslands á vegum Túns og bænda í lífrænni ræktun um miðjan tíundaáratug síðust aldar og heimsótti þá allnokkra bændur og hélt a.m.k.

Tíðindi um erfðabreytta stóriðju í íslenskri náttúru: Er Fréttablaðið á móti aðhaldi?

25 Júl 2010 21:35

Að undanförnu hafa nokkrir fjölmiðlar birt pistla um auðlegð sem kunni að bíða Íslendinga ef þeir leyfi útiræktun á erfðabreyttu lyfjabyggi. Í kjölfar gagnrýnislausra viðtala við forráðamann líftæknifyrirtækis sem að ræktun þessari stendur birti Fréttablaðið forystugrein um ágæti ”líftæknistóriðju”.

Opinn dagur að Neðra Hálsi á "Kátt í Kjós"

14 Des 2009 10:02

Á laugardaginn næstkomandi verður opinn dagur á Neðra Hálsi þar sem gestum verður boðið upp á fræðslu um lífrænan landbúnað ásamt smakki á lífrænum mjólkurafurðum.
Á Neðra Hálsi hefur verið stunduð lífræn mjólkurframleiðsla undanfarna tvo áratugi en ábúendur eru Kristján Oddsson og Dóra Ruf. Þau reka einnig fyrirtækið Biobú ehf. sem sér um fullvinnslu á lífrænum mjólkurafurðum. Mjólkin sem notuð er í þá framleiðsluna hefur að jafnaði komið frá Neðra Hálsi, en þeim hjónum hefur bæst liðsauki frá Búlandi í Landeyjum og Finnastöðum í Eyjafjarðarsveit Hægt er að heimsækja Neðri Háls frá kl. 13-17

Neðri Háls verður þáttakandi í "Kátt í Kjós" næstkomandi laugardag

14 Júl 2010 11:10

Laugardaginn 17. júlí næstkomandi verður Kjósin opnuð fyrir gestum og gangandi undir kjörorðinu “Kátt í Kjós” og er þetta í fjórða sinn sem efnt er til slíkrar hátíðar í sveitarfélaginu.