Málstofa með Mark Measures
Áformað er að halda málstofu með Mark Measures, margreyndum breskum ráðunaut í lífrænni ræktun, föstudaginn 6. ágúst n.k. kl. 10/10.30 til 13.30/14.00. Málstofan verður líkast til haldin í Hveragerði. Mark kom til Íslands á vegum Túns og bænda í lífrænni ræktun um miðjan tíundaáratug síðust aldar og heimsótti þá allnokkra bændur og hélt a.m.k. tvívegis vel heppnaða fundi með bændum. Mark hefur áratuga reynslu af ráðgjöf, rannsóknum og búrekstri á sviði lífrænnar búfjárræktar í Bretlandi, en er okkur einnig af góðu kunnur fyrir að eiga auðvelt með að setja sig inn í aðstæður okkar hér á landi og rökræða hagnýtar lausnir í þágu bænda.
Fjallað verður um nýjar rannsóknir á jarðvegsfrjósemi og stýringu hennar, smáraræktun, meðferð og nýting búfjáráburðar, fosfór og aðra þætti jarðvegsnæringar. Lögð verður áhersla á að tengja umfjöllun beint þeim vandamálum sem bændur hér á landi þurfa að takast á við, og gefinn er mikill tími til fyrirspurna og samræðna. Óstaðfestur titill framsögu er “Management of Soil Fertility on Organic Farms – manure use, mineral fertilizers, soil analysis and nutrient budgeting.”
Málstofan fer fram á ensku (en unnt verður að túlka spurningar og svör ef þörf krefur). Gert er ráð fyrir lítils háttar þátttökugjaldi eða ca. 3.000 kr á mann (með þriðjungs afslætti fyrir hjón eða tvo af sama býli) til að mæta kostnaði við aðstöðu og næringarríkan hádegisverð, sem gert er ráð fyrir að verði innifalinn.
EN – við verðum að vita hvort einhver hefur áhuga á að mæta. Að öðrum kosti er tímasóun að kynna og undirbúa málstofuna. Viltu vinsamlegast láta okkur vita hvort þú og fleiri á þínum vegum hyggst notafæra sér þetta tækifæri og mæta.
Vinsamlegast tilkynnið áhuga á mætingu helst ekki seinna en fyrir kl. 12 á hádegi á morgun þriðjudaginn 27. júlí.
Vottunarstofan Tún
