Uppskriftir
Uppskriftir með lífrænni jógúrt
Ávaxtakaka með lífrænni jógúrt
Fylling:
- 3 dósir hrein lífræn jógúrt
- 1/8 l lífræn mjólk
- 3 msk maísenamjöl
- 1 msk vanillusykur
- 1 tsk hreina vanillu
- 2 eggjarauður
- 4 eggjahvítur
- 80 g hrásykur
Hitið mjólkina og jógúrtina að suðumörkum. Hrærið eggjarauður,vanillusykur, vanillu og maísenamjöli saman við og bætið út í jógúrtina. Látið kólna.
Stífþeytið eggjahvíturnar og hrærið hrásykurinn saman við. Blandið köldu kreminu varlega saman við stífþeyttar eggjahvíturnar.
Botn:
- 250 g smjör
- 250 g hrásykur
- 2 eggjarauður +1 egg
- 150 g hveiti
- 150 g heilhveiti
Mjúkhrærið smjör og blandið hrásykur saman við. Bætið eggjarauðum og egginu út á og hrærið. Blandið heilhveiti og hveiti (má líka nota spelt) saman við hræruna og geymið á köldum stað í klukkutíma.
Setjið botninn í vel smurt hringlaga form, ca 5mm þykkur botn. Má kæla þetta í smá stund.
Svo er fyllingin sett á botninn. Skreytið kökuna með ávöxtum, Þetta er svo lítið árstímabundið hvað er sett út á, látið hugmyndaflugið ráða.
Bakist í 60-70 mínútur við 150° C.
Kakan á myndinni er skreytt með eplaskífum, rifsberjum og bláberjum
- Klaki
- 1 dós lífræn jarðarberja jógúrt
- 1 lífrænn banani
Hrært saman í mixara, tilbúið til drykkjar
- 1 dós hrein lífræn jógúrt
- 1-2 teskeiðar hrásykur
- 1 dl þeyttur rjómi
- 3 epli niðurrifin
- 3 bollar krækiber
- Makkarónur til skreytingar
Hrærið hrásykur út í jógúrtina. Blandið eplin saman við rjómann og bætið síðan sykraða jógúrtina og krækiberin við.
Skreytið með makkarónum.
- 2 bollar sigtað spelt eða hveiti
- 1 bolli hrásykur
- 1 teskeið lyftiduft
- örlítið salt
- 125 g brætt smjör
- 2 egg
- 1 dós lífræn jógúrt með múslí
Hrásykurinn og brædda smjörið hrært vel saman og síðan eggin líka. Deigið sett í hringform og bakist í 35 - 40 mínútur eða í ílangt form og bakist þá í 40 - 50 mínútur hvoru tveggja við 180°C
Grísk jógúrtsósa
- 1 dós hreina jógúrt
- 1 agúrka, skorin í teninga
- sjávarsalt
- svartur pipar
- 3 matskeiðar mynta,smásöxuð
Síið hreina jogúrt í gegnum grisju eða kaffipoka, þá verður hún þykk og slétt. Saltið gúrkuteningana til að ná burt vökva, setið þá í sigti og biðið smá stund. Blandið öllu saman í stórri skál og hrærið gúrkuna saman við. Kælið réttinn vel áður en hann er borinn fram.
Jógúrtdrykkur , stækkaðu mynd og skoðaðu uppskrift
Verði ykkur að góðu !



