Lífrænt kjöt

Lífrænt kjöt frá Neðra Hálsi í Kjós

Allir gripir frá Neðra-Hálsi fara til slátrunar til Sláturfélags Suðurlands. Kjötið er ýmist unnið og markaðsett af SS eða selt beint til neytenda með milligöngu framleiðanda (Neðri-Háls). Hægt er að kaupa kjötið í heilum skrokkum, hálfum eða einum fjórðung úr skrokk og er það úrbeinað og pakkað í neytendapakkningar. Allir gripir á Neða Hálsi eru eingöngu fóðraðir á lífrænu grasi eða heyi. Ekkert korn er notað til fóðrunar. Hægt er að panta kjöt frá Neðra-Hálsi á netfanginu: kristjanhjá biobu.is