Fleiri sæðisfrumur
Komið hefur í ljós við rannsóknir út í Danmörku að karlmenn sem borðuðu lífræna fæðu, mældust með allt að helmingi fleiri frjóvgunarhæfar sæðisfrumur í pr ml. samanborið við þá sem voru á hefðbundnu fæði.
Fleiri sæðisfrumur ef borðað er lífrænt
Komið hefur í ljós við rannsóknir út í Danmörku að karlmenn sem borðuðu lífræna fæðu, mældust með allt að helmingi fleiri frjóvgunarhæfar sæðisfrumur í pr. ml. en þeir sem voru á hefðbundnu fæði. Karlmenn sem voru á lífrænu fæðunni reyndust vera með ca. 104 milljónir sæðisfruma í pr. ml. en karlmenn almennt reyndust vera með 50 - 55 milljónir sæðisfruma. Tilgátur eru uppi um að ýmislegt í fæðu og umhverfi hafi átt þátt í að draga stórlega úr sæðisgæðum og fjósemi karla síðan um miðja síðustu öld.
Lífræni hópurinn: lífrænir bændur og menn sem tengdust lífrænni framleiðslu.
Hefðbundni hópurinn: Menn sem tengdust flugrekstri, prentarar, tölvufræðingar og málm smiðir.
Abell et al. 1994, Lancet, 343, 1498.
Jensen et al. 1996, Lancet, 347, 1844
Eiturefnanotkun í landbúnaði hefur áhrif á fjölda og gæði sæðisfruma hjá mönnum
Í morgunfréttum Ríkisútvarpsins (27.07.2001)var sagt frá Argentískri rannsókn þar sem Franskir og Argentískir vísindamenn hafa fundið út frekari vísbendingar um áhrif eiturefnanotkunar í landbúnaði á ófrjósemi karla. Rannsóknin styður fyrri rannsóknir sem gerðar voru í Frakklandi 1992 um að sæðisfrumum fækki hjá körlum um allan heim og sæðisframleiðsla minnki. Rannsóknirnar fóru fram á sjúkrahúsi í landbúnaðarhéraðinu Rósaríó í Argentínu á árunum 1995 - 1998. Allir karlmenn sem leitað hafa til lækna í Argentínu vegna ófrjósemis voru spurðir um lífshætti, veikindi og fyrri störf og umgengni við eiturefni. Vísindamenn eru ekki í vafa um tengsl á notkun eiturefna í landbúnaði og ófrjósemis hjá körlum. Hugsanlegt er að aðrar orsakir séu fyrir ófrjóseminni, en niðurstöðurnar benda eindregið til að eiturefnin hafi áhrif á eistun og sæðisframleiðsluna, en eistun séu mjög viðkvæm fyrir umhverfisáhrifum og kemiskum efnum.
Heimild: Ríkisútvarpið 27.07.2001
