Manneldisstefnan og pólitíkin
Þessar upplýsingar eru teknar af vef Weston A Price samtakanna, en þau voru stofnuð til að styðja við og halda áfram starfi Dr Weston A Price þess efnis að rannsaka hollustu matvæla og áhrif þess á heilsufar fólks. Dr Weston A Price er þekktastur fyrir þær rannsóknir sem hann gerði á lifnaðarháttum frumstæðra þjóðfélagshópa og áhrifum þess á heilsufar. Þau sem standa að samtökunum m.a. eru læknar, vísindamenn og annað áhugafólk um bætt matvæli og heilsufar.
Af hverju eru ameríkanar að fitna ?
Nefnd á vegum Ödungadeildar Bandaríkjaþings sem hélt fund árið 1970, þróaði pólutíska stefnu í manneldismálum sem byggði á hugmyndum sem fram komu á ráðstefnu sem haldin var í Hvíta Húsinu árið 1969. Sumar af þeim hugmyndum sem fram komu á þeim fundi var haldið mjög á lofti af markaðsfræðingum og öðrum fulltrúum matvælaiðnaðarins. Öldungadeildin áformaði í upphafi að halda fund um hjartasjúkdóma og mataræði, en það breyttist augljóslega í fund um alla banvæna sjúkdóma og matarvenjur þó svo að megináherslan kæmi frá the National Heart and Lung Institute og the American Heart Association, skipulagt af American Health Foundation. Ykkur að segja, var skipulagning mjög undir áhrifum matarolíu og matvæla iðnaðarins.
Öldungardeildin fékk ósannar upplýsingar frá mismunandi rannsakendum ( "vísindamönnum") sem flestir voru á móti dýrafitu og kjöti. Sem dæmi má taka Dr. Gio B. Gori frá the National Cancer Institute og Dr. David M. Hegsted frá Harvard School of Public Health sem komust að því "að það væri beint samband milli neyslu og myndunar krabbameins og það var aðal rökstuðningurinn fyrir því að Ameríkanar skyldu minnka neyslu á mat og sérstaklega minnka neyslu á kjöti og fitu.(Congressional Record 9/16/76 p S15993-4). Samband dýrafitu og krabbameins var fyrst kynnt af Dr. Ernst Wynder frá the American Health Foundation þar sem notuð var jurtafita, en vegna mistaka, var merkt sem dýrafita. Ristilkrabbamein var einnig tengt neyslu á nautakjöti þar sem niðustöður voru ranglega túlkaðar í rannsókn gerða af the National Cancer Institute Japanese-Hawaiian. Raunveruleg niðurstaða þeirrar rannsóknar var sú að að hætta á ristilkrabbameini væri lílegri með neyslu á makkarónum og grænum baunum, en á nauta og lambakjöti.
Nefndin gaf út skýrslu þar sem hundsuð voru rök sem hröktu sjónarmið þeirra sem voru á móti dýrafitu, jafnvel þó svo að þær rannsóknir á kjöti og dýrafitu væru studdar af vísindamönnum og kæmu frá virtum hágæða rannsakendum. Tilraunir fulltrúa kjöt og mjólkurafurða til að vernda sínar afurðir voru einnig árangurslausar.
Nefndin gaf út í riti helstu niðurstöður sem voru þær að minnka skyldi neyslu á dýrafitu, mjólkurfitu og eggjum.
Ef þú minnkar neyslu fitu, að þá verður eitthvað að koma í staðinn og það er kolvetni.
Ef tilskipun er einu sinni gefin út skal hún standa. Enginn ríkisstarfsmaður né rannsakendur sem vinna fyrir opinbert fé skulu voga sér að vinna gegn manneldisstefnu Bandaríkjanna. Allir rannsakendur þurfa að aðlaga sig og gefa út efni sem styðst við manneldismarkmið Bandaríkjanna og birta vísindaniðurstöður við hæfi. Ef rannsakendur þurfa meira fjármagn, þurfa niðurstöður sem upp koma á hverjum tíma að vera í samræmi við útgefnar leiðbeiningar.
Enda þótt þessi leiðbeiningar bæklingur hafi engan vísindalegan bakgrunn, og að enginn augljós vísindi styðji hann, hefur hann orðið að einskonar lögum.
Af þessum sökum hefur nefndin, með aðstoð matvælaiðnaðarins og einnig bróðurpartinum af næringarefnaiðnaðinum sem einnig er samsekur, komið af stað fituskerðingarstefnu sem leitt hefur af sér stór aukna neyslu á kolvetnum, sem hefur gert það að verkum að matarvenjur Ameríkana hafa gerbreyst. Jurtaolíu og kolvetnakaloríur (mest unnið kolvetni) hafa ýtt í burtu dýrafitu kaloríum, sem hefur valdið almennri offitu meðal almennings. Bandaríkjastjórn er nú að biðja um meira af því góða í sama dúr.....allsherjar offitu faraldur meðal Ameríkana.
Þýtt og endursagt af vef The Weston A. Price Foundation, 3.bindi, Númer 1, Vor 2002, með leyfi höfundar Mary G. Enig, Ph.D.
Þessar upplýsingar eru teknar af vef Weston A Price samtakanna, en þau voru stofnuð til að styðja við og halda áfram starfi Dr Weston A Price þess efnis að rannsaka hollustu matvæla og áhrif þess á heilsufar fólks. Dr Weston A Price er þekktastur fyrir þær rannsóknir sem hann gerði á lifnaðarháttum frumstæðra þjóðfélagshópa og áhrifum þess á heilsufar. Þau sem standa að samtökunum m.a. eru læknar, vísindamenn og annað áhugafólk um bætt matvæli og heilsufar.
Lesa fleiri greinar af vef Weston A Price á www.arna.is
