Náttúrulegar transfitusýrur í mjólk hafa heilsubætandi áhrif
Niðurstöður tveggja nýlegra rannsókna sem birtar eru í Marshefti American Journal of Clinical Nutrition staðfesta að náttúrulegar transfitusýrur í mjólk og nautakjöti hafa heilsubætandi áhrif. Margar rannsóknir hafa sýnt að transfitusýrur sem myndast við herðingu jurtaolíu séu skaðlegar heilsu manna en nú kemur í ljós að náttúrulegar transfitusýrur eru alls ekki skaðlegar. Þvert á móti hafa náttúrulegar transfitusýrur í nautakjöti og mjólk heilsubætandi áhrif svo sem fyrir hjartað og til varnar gegn krabbameini.
