Neðri Háls
Ábúendur að Neðra Hálsi
Á jörðinni Neðra Hálsi búa hjónin Dóra Ruf og Kristján Oddsson. Þau hófu sameiginlegan búskap árið 1983.
Þau eru einnig stofnendur og eigendur Biobús ehf.
Lífsviðurværi sitt hafa þau af sölu á lífrænni mjólk og grænmeti.
Heimilsfang:
Kristján Oddsson
Dóra Ruf
Neðri Háls, Kjós,
270 Mosfellsbæ .
Ísland
Sími: 566 70 35 og 894 95 67
kristjan@biobu.is
dora@biobu.is
Hvar er jörðin Neðri Háls.
Jörðin Neðri Háls er í Kjósarhreppi, en sú sveit liggur sunnan við Hvalfjörð, handan við Esjuna, séð frá Reykjavík, og nær að botni Hvalfjarðar. Jörðin liggur sunnan við enda Reynivallaháls, norðan við laxárvog. Jörðin skiftist í tvo hluta, annrsvegar liggur jörðin að sameiginlegum landamerkjum Grímstaða og Valdastaða að austan og síðan Háls að vestan, og síðan er svipuð landstærð í svo kölluðu Hálsnesi þar sem jörðin Háls er annars vegar. Ef ekið er frá Lækjartorgi í Reykjavík að Neðra Hálsi er það um 48 km.
