Lífræn AB jógúrt

8 Feb 2010 12:11

Nú er komin á markað frá Biobú lífræn AB jógúrt og er hún þegar komin í allar verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Ab jógúrtin ætti að vera Lífræn AB jógúrtkærkomin viðbót í lífrænu mjólkurvöruflóruna sem hefur verið einlit fram að þessu. A og B gerlarnir sem settir eru í þessa jógúrt stuðla að betri meltingu og vinna gegn óæskilegum örverum í meltingarveginum. AB jógúrt byggir auk þess upp mótstöðuafl líkamans og eflir ónæmiskerfið. Lífræna AB jógúrtin er í 170 gr dósum og verður eingöngu seld hrein til að byrja með. Þess er vænst að neytendur eigi eftir að meta aðgang að þessum nýja lífræna valkosti.