Opinn dagur að Neðra Hálsi á "Kátt í Kjós"

14 Des 2009 10:02

Á laugardaginn næstkomandi verður opinn dagur á Neðra Hálsi þar sem gestum verður boðið upp á fræðslu um lífrænan landbúnað ásamt smakki á lífrænum mjólkurafurðum.
Á Neðra Hálsi hefur verið stunduð lífræn mjólkurframleiðsla undanfarna tvo áratugi en ábúendur eru Kristján Oddsson og Dóra Ruf. Þau reka einnig fyrirtækið Biobú ehf. sem sér um fullvinnslu á lífrænum mjólkurafurðum. Mjólkin sem notuð er í þá framleiðsluna hefur að jafnaði komið frá Neðra Hálsi, en þeim hjónum hefur bæst liðsauki frá Búlandi í Landeyjum og Finnastöðum í Eyjafjarðarsveit Hægt er að heimsækja Neðri Háls frá kl. 13-17

Neðri Háls verður þáttakandi í "Kátt í Kjós" næstkomandi laugardag

14 Júl 2010 11:10

Laugardaginn 17. júlí næstkomandi verður Kjósin opnuð fyrir gestum og gangandi undir kjörorðinu “Kátt í Kjós” og er þetta í fjórða sinn sem efnt er til slíkrar hátíðar í sveitarfélaginu.

Neðri Háls. Sláttur hófst 5 júní.

5 Jún 2010 22:28

Sláttur hófst að Neðra Hálsi á laugardag 5 júní s.l. . Spretta var vel í meðallagi og mjög sérstakt að komið skuli svo gott gras svo snemma. Undanfarin ár hefur sláttur byrjað í kringum 10 - 11 júní. Slegnir voru tæpir tveir hektarar sem gáfu 28 rúllur  af söxuðu heyi. Vika er síðan gras á umræddum spildum fór að skríða, sem þíðir að gras var fullsprottið.

Biobú sjö ár á markaði

3 Jún 2010 08:55

Þennan dag, 3. júní árið 2003 fóru fyrstu vörur Biobú á markað. Um var að ræða þrjár braðgtegundir af jógúrt, hrein, jarðarberja og múslí. Í dag framleiðir Biobú margar tegundir af jógúrt, eins og mangó og kókos sem eru vinsælustu vörur Biobú. Biobú hefur einnig verið að föndra við fleiri vörur eins og skyr...