Starfshópur skipaður um lífrænan landbúnað
Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hefur skipað nefnd til að meta stöðu lífræns landbúnaðar á Íslandi. Hlutverk hópsins er jafnframt að meta hvernig best verði staðið að þróun þess geira með tilliti til markaðs og framleiðsluaðstæðna.
Fituskert mjólk er fitandi; en ófituskert er það ekki
Rannsókn þar sem 12,829 börn á aldrinum 9 og 14 ára tóku þátt leiddi í ljós samband offitu og þess að drekka fituskertar mjólkurafurðir, en neysla á heilmjólkurafurðum tengdist ekki offitu. Frá þessu var sagt í tímaritinu Archives of Pediatrics and Adolescent Medicine.
Félagsfræðileg vandamál
Undanfarnar vikur hafa starfsmenn í framleiðsludeild Biobú átt í samskiptavandamálum við jógúrtgerlana. Gerlarnir eru með sjálfstæða hugsun og hafa ekki viljað sýra jógúrtina eins og venjulega. Undan farnar vikur hefur hún verið frekar misjöfn, þunn, smá yrjótt og stundum of súr, við hjá Biobú biðjumst velvirðingar á því.
Biobú rjómaostur kominn í fleiri verslanir
Biobú rjómaostur kominn í fleiri verslanir.
Nú fást rjómaostarnir einnig í Hagkaupsverslunum, Nettó, Samkaup Úrval (Selfossi, Borgarnesi og Hafnarfirði) og Kaskó Keflavík. Fyrir voru þeir í Fjarðarkaup, Melabúðinni, Yggdrasill, Brauðhúsinu, Manni lifandi, Búrinu og Græna hlekknum. Njótið vel og góða helgi.
- fyrsta síða
- fyrri síða
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- …
- næsta síða
- síðasta síða








