D-vítamín mikilvægara en talið var
Nýjar rannsóknir sýna að D-vítamín er miklu mikilvægara fyrir líkamann en áður var talið. Vitað var að D-vítamín er nauðsynlegt líkamanum, verndi gegn krabbameini og beinþynningu. En nú hefur komið í ljós að D-vítamín gegnir lykilhlutverki í ónæmiskerfi líkamans. Frá þessu er greint á vef danska dagblaðsins Berlingske Tidende.
Biobú gerist meðlimur að Facebook samfélaginu
Biobú hefur nú gerst meðlimur að Facebook samfélaginu og hefur nú þegar fengið yfir 200 áðdáendur. Við mælum með því að fólk gerist aðdáendur sé það einnig meðlimir í því samfélagi, ekki vegna þess að við teljum okkur vera svo algerlega sérstaka, heldur vegna þess að þá gefst ykkur tækifæri til að fá nýjustu fréttir hverju sinni.
Lífrænn rjómaís á markað frá Biobú
Loksins er nú fáanlegur íslenskur lífrænn rjómaís. Biobú hefur hafið framleiðslu á lífrænum rjómaís og fyrstu ísboxinn fóru í verslanir í vikunni. Um er að ræða tvæ bragðtegundir, vanillu og jarðarberja, Ísinn er mjög þétttur í sér og gott er að taka hann úr frysti nokkrum mínútum áður en hans er neytt. Ísinn er búinn að vera í þróun í nokkurn tíma en Biobú notar eingöngu eitt bindiefni (guar gum E412) í mjög litlu magni og engin litarefni, en þess má geta að í hefðbundnum ís eru um 10 E- efni og að auki litarefni.
Biobú setur á markað AB jógúrt
Nú er komin á markað frá Biobú lífræn AB jógúrt og er hún þegar komin í allar verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Ab jógúrtin ætti að vera kærkomin viðbót í lífrænu mjólkurvöruflóruna sem hefur verið einlit fram að þessu.
- fyrsta síða
- fyrri síða
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- …
- næsta síða
- síðasta síða









